Jæja hvað er að frétta jaaaa hver
veit, það er nú stór spurning. Það sem kemur efst í kollvikinn
er síðasti miðvikudagur já eða kvöldið, það er nú mál með vexti
ekki bumbu samt, að við félagarnir Helgi, Magni og ég Monni Næju
fórum á mýrina eftir leik í Hveragerði og var stefnan
tekinn að gista í grafarvoginum í íbúð sem vinafólk Helga á, Við
þurftum náttúrulega lykil, jaaaaa hvar er lykillinn jú í
breiðholtinu var hann geymdur og var farið í ferð að ná í
hann.
Leiðinn lá síðan í grafarvoginn að
leggja sig og var lyklinum beitt þar á nokkrar hurðir af mikilli
kænsku, en inn vildi heilvítið ekki. Við félagarnir gátum ekki
annað en grenast um hversu fyndið það yrði ef löggan myndi skjótja
upp rótum í voginum og plús það að Baldur Ólafss myndi væri einn
af löggæslu
mönnunum.
Ekkert gerðist og við leggjum í hann
úr bílastæðinu á Vættuborgum 6 í leit að gistingu og farnir að sjá
pappakassa í hyllingum á Laugarveginum sem ákjósanlegan gististað,
en allt kom fyrir ekki eða jú það kom fyrir. Allt í einu “ÞRUSAST”
tveir bílar að okkur með bláuljósinn og ljóskastarann í botni, annar
bílinn keyrði niður frá bílastæðinu og niður hallann og í veg fyrir
okkur önnur eins glannakeyrsla hefur ekki sést áður hér á fróni (
eina sem ég hugsaði var ,hvaða geðsjúklingur er að keyra á þessu
svakalega “FARTI” niður greyið hallann og misþyrma framtíðar
grasrótum sem að börn bæjarins hafa unnið hörðum höndum að
gróðursetja fyrir skitinn túkall í bauk) jú auðvitað var glanninn
enginn annar en BIG B a.k.a Kastleifur a.k.a mr clean cut a.k.a
mc´Donalds customer of the year.
Kominn til að taka okkur í rófubeinið
og merja á okkur brisið, en drengurinn var sá ljúfasti, ég og Magni
fórum að tala við dreng og meðan á því stórmerkilega samtali gekk
á, heyrði maður í kallkerfinu í löggubílnum ( þetta voru bara
utanbæjarmenn með vitlausann lykill) Já hvað haldiði það var
tilkynnt um innbrot og að 3 dökk klæddir menn væru að gera sig
líklega í ævintýri. En hey!!! Hver hefur ekki notað vitlausann
lykil eða eins og Magni Hreindýr myndi orða það “you don´t shit a
lot of that”
Endirinn er einfaldur, ég
og Magni fórum á hótel
og Helgi jaaaaaaa Helgi hann fann tvífara sinn.
Helgi
Reynir
Igor Bjarni
